Stika fyrir eyðublaðaleiðsögn
Stikan fyrir eyðublaðaleiðsögn inniheldur táknmyndir til breytinga á gagnagrunnstöflum eða til að stýra gagnasýn. Stikan birtist neðst í skjalinu sem inniheldur gagnasvið sem tengjast gagnagrunni.
Þú getur notað stikuna fyrir eyðublaðaleiðsögn til að ferðast á milli færslna auk þess að setja inn og eyða færslum. Ef gögn á eyðublaði eru vistuð, færast breytingarnar yfir í gagnagrunninn. Stikan fyrir eyðublaðaleiðsögn inniheldur einnig verkfæri til röðunar, síunar og leitar í gagnafærslum.
Þú getur notað táknmyndina fyrir leiðsagnarstikuna á Fleiri stýringar stikunni til að bæta leiðsagnarstiku á eyðublað.
Leiðsagnarstikan er einungis sýnileg á eyðublöðum sem tengd eru gagnagrunni. Í Hönnunarsýn eyðublaðs, er leiðsagnarstikan ekki tiltæk. Skoðaðu einnig Töflugagnastika.
Þú getur stýrt ásýnd gagna með röðun og síun. Upprunalegum töflum verður ekki breytt.
Núverandi röðun eða síun er vistuð með skjalinu. Ef sía er stillt, er táknmyndin Beita síu á leiðsagnarstikunni vera virk. Síun og röðun í skjalinu er einnig hægt að stilla í Eiginleikar eyðublaðs glugganum. (Veldu Eiginleikar eyðublaðs - Gögn - Eiginleikar Raða og Sía).
Ef SQL-skipun er grunnur eyðublaðs (sjá Eiginleikar eyðublaðs - Gögn flipinn - Gagnagjafi), þá eru síun og röðun einungis tiltæk þegar SQL-skipunin vísar einungis í eina töflu og er ekki skrifuð í innbyggða SQL-hamnum.
Algild færsla
Birtir númer virkrar færslu. Settu inn númer til að fara í tilheyrandi færslu.
Fyrsta færsla
![]()
Fer með þig í fyrstu færsluna.
Fyrri færsla
![]()
Fer með þig í fyrri færslu.
Næsta færsla
![]()
Fer með þig í næstu færslu.
Síðasta færsla
![]()
Fer með þig í síðustu færsluna.
Vista færslu
![]()
Vistar nýja gagnafærslu. Breytingin er skráð í gagnagrunninn.
Afturkalla: Innsetning gagna
![]()
Gerir þér kleift að afturkalla gagnafærslu.
Ný færsla
![]()
Býr til nýja færslu.
Eyða færslu
![]()
Eyðir færslu. Staðfesta verður fyrirspurn áður en hún er framkvæmd.